Átakanlegt myndband af höfrungum og hvölum í sædýrasafni hafa vakið mikla reiði netverja undanfarið. Þar sjást fallegu sjávardýrin búa við skelfilegar aðstæður í bandarísku sædýrasafni en laugarnar eru allt of litlar. Þar liggja spendýrin saman og synda stöðugt í hringi.
Orca Lolita, áður þekkt sem Tokitae, hefur verið í haldi í sædýrasafninu í Miami frá árinu 1970. Myndböndin sýna hana synda stefnulaust í tankinum sínum en þar er vatnið grænt og í sólinni allan daginn. Lolita, 56 ára, hefur eytt næstum öllu lífi sínu í haldi. Dýraverndunarsinnar telja að hún sé elsti hvalurinn í haldi og berjast nú fyrir því að hún fái að eyða síðustu árum ævi sinnar frjáls, á vernduðu svæði við sjávarsíðuna.
Myndband: Skelfilegur aðbúnaður í sædýrasafni vekur mikla reiði

Helgarviðtalið
- Auglýsing -
Orðrómur
- Auglýsing -
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -