Sást loksins til hennar.
Loksins hefur sést til Kate Middleton en prinsessan hefur haldið sig úr sviðsljósinu síðan í desember en hún fór í aðgerð á kvið um miðjan janúar. Ýmsar samsæriskenningar hafa flogið hátt á internetinu í fjarveru hennar en nú virðist vera að hún sé komin aftur á stjá. Prinsessan sást í gær með móður sinni í bíl nálægt Windsor-kastlanum aðdáendum hennar til mikillar gleði.
Ekki hefur verið gefin skýring á fjarveru Middleton en upphaflega stóð til að hún myndi vera í tvær vikur á sjúkrahúsi eftir aðgerðina og myndi hefjast handa við að sinna konunglegum skyldum sínum aftur í kringum páska.