Miðvikudagur 24. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Vialli látinn eftir baráttu við krabbamein

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ítalska knattspyrnugoðsögnin Gian­luca Vialli er látinn, aðeins 58 ára að aldri; Ítalinn Gianluca Vialli, sem var einn besti framherji heims á sínum tíma, er látinn: Banamein hans var krabbamein í brisi.

Alls lék Vialli lék 59 leiki fyrir hönd Ítalíu og skoraði í þeim 16 mörk.

Hann var í hinu skemmtilega bronsliði Ítala á HM 1990.

Vialli hóf hinn glæsilega atvinnumannaferil sinn með Cremonese, en gekk árið 1984 til liðs við Sampdoria, þar sem hann lék í fremstu víglínu ásamt Roberto Mancini, æskuvini sínum, en Mancini er nú þjálfari Ítalíu.

Þeir félagar urðu ítalski meistarar með Sampdoria árið 1991 – eini Ítalíumeistaratitill félagsins.

- Auglýsing -

Vialli átti líka glæsilegan feril hjá Juventus; varð ítalskur meistari með liðinu 1995 – og vann Meistaradeildina ári síðar.

Vialli var síðar þrjú ár í röðum Chelsea, á árunum 1996-1999, og varð spilandi þjálfari liðsins árið 1998; en það ár varð hann fyrsti ítalski þjálfarinn til að taka við liði í ensku úrvalsdeildinni.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -