Fundi Eflingar og Samtaka atvinnulífsins hjá settum ríkissáttasemjara lauk laust efir miðnætti án árangurs. Nú hefur verkfall bílstjóra hjá Olíudreifingu á höfuðborgarsvæðinu staðið frá 19. febrúar. Áhrifa þess er farið að gæta víða en Olíufélögin halda viðskiptavinum sínum vel upplýstum á heimasíðum sínum og uppfæra jafnóðum birgðastöðu.
Hér má sjá stöðuna á bensínstöðvunum:
Atlantsolía
Orkan
Olís
N1
Þeim fjölgar stöðugt stöðvunum þar sem eldsneyti er búið eða er að klárast.
Hjá Atlantsolíu er lokað í Hafnarfjarðarhöfn, bensín er búið á Háaleitisbraut og í Mosfellsbæ, lokað er á Kjalarnesi. Lokað er hjá Atlantsolíu á Sprengisandi en sú stöð þjónustar eingöngu þá aðila sem fengið hafa samþykkta undanþágubeiðni frá Eflingu.
Staðan hjá Orkunni er nokkuð góð, aðeins er ein stöð þar sem eldsneyti er búið. Í Suðurfelli er dísilolía búin. Orkustöðvarnar í Skógarhlíð og á Dalvegi er nú aðeins opnar fyrir neyðaraðila. Orkan í Fellsmúla er einnig lokuð fyrir almenning. Sú stöð er eingöngu opin fyrir Hreyfil.
Hjá Olís og ÓB er staðan verst. Þar er eldsneyti víða búið eða við það að klárast.
N1 stöðvar, sem hafa fengið undanþágu til afgreiðslu neyðarbirgða til undanþáguaðila, þegar þar að kemur eru eftirfarandi:
N1 Stórahjalla
N1 Hringbraut
N1 Lækjargötu
Dælur eru opnaðar sérstaklega af starfsmönnum N1 í hverju tilfelli.
Lokað hjá N1 á Reykavíkurvegi og díselolía búin Ásvöllum í Hafnarfirði.