Neytendur er greinilega farnir að birgja sig upp af ýmsum nauðsynjavörum. Blaðamaður Mannlífs var á ferðinni í Bónus í dag og þar var farið að bera á tómum hillum. Töluverður fjöldi var að versla með körfur yfirfullar af pakkavöru og dósamat. Í grænmetiskælinum var farið að bera á skorti á nokkrum vörutegundum. Þar á meðal, papriku, sveppum, spergilkáli og tómötum.
Meðal þeirra félagsmanna Eflingar, sem lögðu niður störf í dag, eru bílstjórar í vöruflutningum. Verslanir hafa birgt sig upp eins og kostur er. Daglega eru keyrðar út vörur til verslana og ekki mikið svigrúm til að geyma stærri pantanir. Því má búast við að það gangi hratt á vörubirgðir á næstu dögum ef verkfall heldur áfram.