Föstudagur 26. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Fórnarlambið og fanturinn lentu báðir í fangelsi – Rólegt á nýársnótt en talsvert um ofbeldi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Nýársnótt var fremur rólegf hjá lögreglunni en litaðist öðru fremur af líkamsárásum og hótunum. Ofbeldisseggur í miðborginni réðsr á annan með fólksulegum hætti. Lögregla var kölluð til og handtók fantinn. Þá vildi ekki betur til en svo að fórnarlambið veittist að lögreglunni og reyndi að frelsa fantinn. Þetta endaði með þvío að bæði þolandi opg gerandi voru settir í fangaklefa og bíða þess að svara fyrir ofbeldið á fyrsta degi ársins.

Úr einu af úthverfum borgarinnar barst lögreglu neyðarkall vegna líflátshótana. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvernig það mál endaði.

Tveir voru haandteknir, grunaðir um brot á lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar. Þeir voru í þannig ástandi að lögreglan ákvað að fangelsa þá.

Svo virðist sem flestur hafi farið varlega með flugelda og tertur því lítið er um slys. Þó var  óskað eftur aðstoð vegna brunaslyss á svæði Hafnarfjarðarlögreglu. Þarf hafði aðili hlotið brunasár vegna útikertis. Sá var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild. Á svipuðum slóðum var aðili handtekinn grunaður um stórfellda líkamsárás. Sá er einnig grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Hinn drukkni ofbeldismaður var vistaður í fangageymslu lögreglu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -