Sjálfur Gaupi – Guðjón Guðmundsson – íþróttafréttamaður á Sýn kom sem gestur í Íþróttavikunni með Benna Bó á Hringbraut, ásamt Herði Snævar Jónssyni, íþróttastjóra á Torgi.

Í þættinum var rætt um komandi landsleiki hjá karlalandsliðinu í fótbolta; liðið er að hefja leik í undankeppni EM 2024.
Leikmaður Genoa – Albert Guðmundsson – hefur verið í ónáð hjá landsliðsþjálfaranum, Arnari Þór Viðarssyni, undanfarin misseri.

Albert hefur spilað vel síðustu vikur; en Arnar Þór ákvað þó að velja ekki Albert; sagði Arnar Þór að hugarfar Alberts í verkefnum ekki hafa verið nægilega gott.
„Þarna þarf landsliðsþjálfarinn að brjóta odd á oflæti sínu og hafa samband við leikmanninn sjálfur, hann getur ekki ætlast til þess að leikmaðurinn sjálfur hringi í hann og slíðri sverðin. Hann verður að leysa málið,“ segir Gaupi og bætir við:

„Hann er maður að meiri ef hann gerir það, íslenska landsliðið er í þeirri stöðu í dag í fótbolta að það er möguleiki að fara í gegnum þennan riðil. Til þess þarf að hafa alla okkar bestu menn, íslenska landsliðið hefur ekki efni á því að vera án Alberts í þessu verkefni. Mér finnst allt þetta mál til háborinnar skammar.“
Gaupa finnst „Arnar stundum hrokafullur í svörum og allri sinni nálgun en hann hefur verið á uppleið með liðið. Hann þarf að brjóta odd á oflæti sínu og taka upp símann.“
Hörður Snævar segir að Albert hafi alla hæfileika heimsins til að vera lykilmaður í landsliðinu, en Hörður sér málið ekki leysast á næstunni:

„Ég tel útilokað að Albert verði í hópnum, hnúturinn er þannig bundinn að það gæti reynst erfitt að leysa hann. Albert hefur alla þá hæfileika sem til þarf til að vera einn besti leikmaður liðsins. Ég held að þetta mál hafi hins vegar hjálpað Arnari að stíga niður fæti innan hópsins. Ef þetta á að leysast þarf þjálfarinn að hafa frumkvæðið að því. Ég sé hann ekki vera í hópnum sem verður valinn.“