Miðvikudagur 27. mars, 2024
2.8 C
Reykjavik

Grunur um skráningar með sviksömum hætti

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Afskipti voru höfð af um 20 manns í umfangsmiklum aðgerðum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, embætti ríkisskattstjóra, Vinnueftirlitsins og Vinnumálastofnunar fyrr í vikunni í þágu rannsóknar vegna grunsemda um skráningar á kennitölum í gegnum Þjóðskrá með sviksömum hætti.

Kemur þetta fram í tilkynningu frá LRH.

Tæplega helmingur mannanna var færður á lögreglustöð, en þar kom í ljós að hinir sömu höfðu ekki atvinnuréttindi til starfa hérlendis. Útlendingastofnun hefur nú mál þeirra til frekari meðferðar, en mennirnir eiga yfir höfði sér hugsanlega brottvísun og endurkomubann.

Hinn helmingur hópsins gat ekki gert grein fyrir sér við afskiptin og því þurfti að ganga úr skugga um það með skoðun persónuskilríkja þeirra í framhaldinu. Tók það nokkurn tíma, en hinir sömu reyndust allir uppfylla tilskilin skilyrði til starfa á Íslandi og gátu þeir því haldið áfram störfum sínum.

Rannsóknin lýtur einnig að vinnuveitendum mannanna og hafa þeir verið kallaðir til yfirheyrslu til að leita frekari skýringa á tilurð málsins.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -