Föstudagur 10. maí, 2024
7.8 C
Reykjavik

Guðbjörg Svava er látin – Faðir hennar missti eiginkonu og dóttur sama daginn

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Guðbjörg Svava Guðmundsdóttir er látin, aðeins 37 ára. Hún hafði glímt við mikla erfiðleika í lífi sínu. Eiginmaður hennar, Tómas Waagfjörð, var stunginn til bana á Ólafsfirði þann 3. október 2022. Hún fæddist þann 13. október 1986 og var nýorðin 37 ára. Mannlíf fjallaði um málið á sínum tíma og ræddi við hana um harmleikinn.

Guðmundur og Anika Hillbracken kona hans. Hún lést í sama dag og dóttir hans. Þau bjuggu í Svíþjóð en myndin er tekin í Íslandsheimsókn þeirra.

Faðir Guðbjargar Svövu, Guðmundur Sigurður Guðmundsson, sem býr í Svíþjóð, glímir við þann harm að missa bæði eiginkonu og dóttur saman daginn. Hann minntist dóttur sinnar með fallegum orðum á Facebook þann 20 október. „Sorgin hefur sótt mig heim. Konan mín Annika. lést í fangi mínu snemma í morgun. Samtímis missti ég yngri dóttur mína Svövu,“ skrifaði hann. Guðmundur Sigurður ræddi við Mannlíf í morgun. Hann er að jarða konu sína í Svíþjóð en stefnir að því að komast í útför dóttur sinnar á Íslandi.

Guðbjörg Svava lætur eftir sig tvo syni. Annar þeirra er aðeins þriggja ára.

Mannlíf vottar Guðmundi og öðrum aðstandendum dýpstu samúð,.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -