Guðmundur Kristjánsson, kenndur við Brim, hefur keypt þá fornfrægu jörð, Finnbogastaði í Árneshreppi. Hrafn Jökulsson mun ætla að setjast að á Finnbogastöðum. Hann hefur átt í samstarfi við Veraldarvini sem hafa unnið stórvirki og staðið að stórfelldum hreinsunum á fjörum á Ströndum og víðar. Veraldarvinir munu fá skjól á jörðinni þegar þeir vinna að hreinsun með Hrafni. Hermt er að Guðmundur hafi hrifist af framtakinu og ákveðið að leggja sitt lóð á vogarskálarnar með þessu móti.

Árneshreppur er fámennasti hreppur landsins. Samfélaginu þar hefur hnignað stöðugt með brottflutningi fólks úr sveitarfélaginu. Nú er svo komið að innan við 20 manns eru þar með vetursetu en að sumrinu eru mun fleiri. Stöðugt fleiri bændur hafa brugðið búi og er nú svo komið að aðeins fjögur fjárbýli eru í sveitinni. Um tíma stóð til að fara í stórfelldar virkjanaframkvæmdir í Hvalá en þau áform virðast að baki, sumum til léttis en öðrum til ama.
Koma Veraldarvina í Árneshrepp mun örugglega verða sem vítamínsprauta í samfélagið. Guðmundur vildi í samtali við Mannlíf ekki tjá sig um málið opinberlega.