Guðmundur Birkir Pálmason, kírópraktor og áhrifavaldur, alltaf kallaður Gummi kíró, er alls ekki hættur að nota sólgleraugu frá öðrum framleiðendum; þrátt fyrir að hafa gefið út sína eigin sólgleraugnalínu, Moxen Eyewear, í fyrra.
Gummi birti mynd af sólarvörnum og Tom Ford-sólgleraugnaboxi,en hann hefur dvalið undanfarið í sólinni á Tene. Sólgleraugu frá hinum fræga hönnuði Tom Ford er hægt að fá á um 500 dollara og uppúr – rúmlega 70 þúsund krónur.
Gummi og kærasta hans, athafnakonan Lína Birgitta Sigurðardóttir, gáfu út eigin sólgleraugnalínu, Moxen Eyewear, á síðasta ári.
Var í kjölfarið línan gagnrýnd nokkuð og heyrðust raddir hér og þar sem fullyrtu að gleraugun væru af Ali Express, eða af einhverri annarri sambærilegri síðu. Gummi sagði á sínum tíma að ekkert væri hæft í þeim málflutningi; að raddirnar væru rangar.