Gústaf Níelsson er líkt og bróðir hans, Brynjar, maður sem er ófeiminn við að tjá sig og segja umbúðalaust sína skoðun, þótt mögulega sé enginn að biðja um það.

Það fælir Gústaf ekki frá þessari lausn, sem hann telur vera góða og vel gerlega:

„Umboðsmaður alþingis er grunnhyggnari maður en ég hélt. Auðvitað þarf embætti ríkislögreglustjóra ekki að eiga og reka hjólastólabíl, sem kostar sjálfsagt ekki minna en tuttugu milljónir, kominn í hús.“
Lausnin:
„Best væri auðvitað að löggan hringdi bara á Hreyfil og pantaði hjólastólabíl, ef á þyrfti að halda.“

Ekki er ósennilegt að nú klóri vinur bræðranna – Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra – sér mikið í kollinum yfir því að hafa ekki dottið þetta snilldarráð Gústafs í hug sjálfur.
Hver veit?