Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Heilnæm máltíð fyrir 128 krónur

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hagsýnir heimilisrekendur taka slátur. Slát­ur­markaður SS og Hag­kaupa í Kringlunni er nú op­inn þriðju­daga til föstu­daga frá klukk­an 14 til 18. 

Þrjú slátur duga í um það bil 9 máltíðir fyrir fjögurra manna fjölskyldu ef allt hráefni er notað og bæði gerð lifrarpylsa og blóðmör. Þrjú fersk heilslátur kosta 4599 krónur á Sláturmarkaðnum og reiknast þá máltíðin á 511 krónur eða litlar 128 krónur á manninn. 

Slátur er hefðbundinn íslenskur matur sem er gerður úr innmat og blóði lamba. Þegar keypt er eitt slátur inniheldur það vömb, mör, blóð, lifur, hjarta, nýru og sviðinn haus.

Slátur er járn- og A vítamínríkur matur og nauðsynleg viðbót nú til dags vegna mikillar neyslu á pasta og hvítu kjöti sem inniheldur ekkert járn. Slátur er því allt í senn hollur, góður og ódýr matur. 

Þar sem talsverðar takmarkanir eru á skemmtanahaldi um þessar mundir er gráupplagt að hóa saman fjölskyldu eða vinum og eiga gæðastund við þessa gamalgrónu iðju.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -