- Auglýsing -
Einstaklingur sem keypti sér miða í Krambúðinni á Hólmavík á Ströndum hafði aldeilis heppnina með sér í Víkingalottóinu. Viðkomandi vann 3. vinning sem gaf um 2 milljónir út í hönd.
Engin var með fyrsta vinning en sjö voru með fjórar tölur réttar í jókernum og gefur það hverjum vinningshafa 100.000 krónur.