Laugardagur 27. júlí, 2024
10.8 C
Reykjavik

Herdís kúabóndi segir neytendur vilja íslenskt kjöt: „Íslenski bóndinn orðið undir í verðstríði“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Herdís Magna Gunnarsdóttir er formaður landssambands kúabænda og hún segir að hér á landi sé stefnulaus innflutningur á kostnað innlendrar framleiðslu:

„Nýútkomin skýrsla frá RML um afkomu nautakjötsframleiðenda, sem nær til rekstraráranna 2017-2019, hefur sýnt fram á að tekjur af sölu nautakjöts stóðu ekki undir framleiðslukostnaði,“ segir hún og bætir við:

„Á síðasta ári fengum við svo enn meiri afurðaverðslækkanir á okkur og því er staða greinarinnar í dag enn alvarlegri; líkt og bændaforystan hefur bent á um nokkurt skeið. Vandinn er líklega margþættur en þar ber helst að nefna aukna samkeppni við innflutning á lægri verðum,“ segir Herdís og bætir við:

„Í ræðu forsætisráðherra á síðasta Búnaðarþingi minntist hún á að innlendur landbúnaður og matvælaframleiðsla verði ein stærstu pólitísku mál þessarar aldar og að með skýrri stefnu um aukið hlutfall innlendrar framleiðslu af neyslu okkar sé í senn hægt að tryggja fæðu- og matvælaöryggi. Þannig tryggjum við aðgengi að mat og höfum betri tök á að tryggja heilnæmi matvælanna með skýrum reglum um sýklalyfjanotkun. Þá getum við um leið unnið gegn loftslagsbreytingum með því að draga úr flutningum heimshorna á milli á mat sem hægt er að framleiða hér.“

Og færir í tal bleika fílinn:

„Gerðar eru ákveðnar kröfur um framleiðsluhætti og gæði innlendra matvæla. Það hlýtur að vera sjálfsögð krafa að í það minnsta séu gerðar sömu kröfur til innfluttra matvæla og gerðar eru til innanlandsframleiðslunnar. Þetta eru meginstef Matvælastefnu sem kynnt var í lok síðasta árs og í nýlegri Landbúnaðarstefnu fyrir Ísland var mikilvægi innlendrar matvælaframleiðslu ítrekað. Allt er þetta af hinu góða og stefnurnar gefa fögur fyrirheit um framtíðina. Bleiki fíllinn í herberginu er þó sá að þegar kemur að innflutningi matvæla fer núverandi fyrirkomulag alls ekki saman við markmið áðurnefndra stefna.“

- Auglýsing -

Herdís ljær máls á því að „það er landbúnaðinum lífsnauðsynlegt að bregðast við og aðlagast breyttum neysluvenjum hverju sinni. Þrátt fyrir samdrátt í kjötneyslu almennt hefur neysla á nautakjöti aukist undanfarin ár og framleiðslan líka, en sé litið til síðastliðins áratugs hefur hlutdeild innlendrar framleiðslu í innanlandsneyslu dregist saman. Fyrir 10 árum voru 96% alls nautakjöts sem við borðum íslenskt og 4% innflutt en á síðasta ári var það íslenska komið í 80% og innflutta í 20%. Þessi þróun fer augljóslega ekki saman við stefnu um aukið hlutfall innlendrar framleiðslu af neyslu landsmanna. Það er líka erfitt að sjá að aukinn innflutningur tryggi aukna verðmætasköpun hérlendis. Með auknum innflutningi á kostnað innlendrar framleiðslu gefum við um leið frá okkur tækifæri til að hafa áhrif á hvernig við framleiðum matvæli, hvort sem er út frá umhverfis- eða heilsufarssjónarmiðum.“

Herdís nefnir að „þá þarf vart að skýra að með auknum innflutningi erum við ekki að draga úr flutningi með matvæli heimshorna á milli eða kolefnislosun. Til viðbótar ber að nefna að nýlega var sýnt fram á að íslenskt nautakjöt hefur allt að helmingi lægra kolefnisspor en erlent,“ og bætir þessu við:

„Í könnunum undanfarin ár hefur komið fram að neytendur vilja íslenskt kjöt umfram það erlenda og í matvæla- og landbúnaðarstefnu stjórnvalda kemur skýrt fram vilji til þess að neytendum standi til boða heilnæm matvæli, framleidd hér á landi. En, það er erfitt fyrir íslenskan landbúnað að starfa eftir metnaðarfullum stefnum, sem á ýmsan hátt kalla á dýrari framleiðsluhætti en ella, og á sama tíma gert að keppa við innfluttar landbúnaðarafurðir sem jafnvel þurfa ekki að uppfylla sömu kröfur og eru þar af leiðandi á lægri verðum en við þurfum að fá fyrir okkar framleiðslu. Í verðstríðinu við innflutninginn hefur íslenski bóndinn því orðið undir, líkt og skýrsla RML sýnir. Framleiðendur eru komnir að sársaukamörkum og við þurfum að hafa hraðar hendur ef við viljum ekki að innlend nautakjötsframleiðsla leggist af.“

- Auglýsing -

Herdís færir í tal að „við gerum ákveðnar kröfur um framleiðsluhætti og gæði innlendra matvæla. Það hlýtur að vera sjálfsögð krafa að í það minnsta séu gerðar sömu kröfur til innfluttra matvæla og gerðar eru til innanlandsframleiðslunnar,“ og sendir frambjóðendum til alþingiskosninganna í haust áskorun:

„Ég skora á frambjóðendur í komandi alþingiskosningum að kynna sér vel innlenda matvælaframleiðslu og landbúnað. Einnig skora ég á núverandi og verðandi þingmenn að horfast í augu við bleika fílinn í landbúnaðarherberginu og taka umgjörð innflutningsmála og tollasamninga með landbúnaðarvörur til gagngerrar endurskoðunar.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -