Föstudagur 19. apríl, 2024
-0.8 C
Reykjavik

„Höfum ekki séð eins lofandi niðurstöður varðandi lyf sem ráðast að rótum Alzheimersjúkdóms“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Miðað við fyrstu niðurstöður rannsókna á lyfinu lecanemab virðist það hægja verulega á áhrifum sjúkdómsins Alzheimer, en þetta kemur fram á ruv.is.

Frá þessu er sagt í nýjasta hefti New England Journal of Medicine.

Steinunn Þórðardóttir er formaður Læknafélags Íslands og öldrunarlæknir, og hún segir að „ég ætla að leyfa mér að segja að vonandi er þetta byltingin sem við höfum verið að bíða eftir,“

Steinunn er bjartsýn á að ekki séu mörg ár þar til lyfið verður komið á markað:

„Maður veit það af biturri reynslu fyrri ára að maður verður að stíga varlega til jarðar. En við höfum ekki séð eins lofandi niðurstöður fyrr varðandi lyf sem eiga að ráðast að rótum Alzheimersjúkdóms. Þetta lyf hreinsar út amyloid sem hefur myndað svokallaðar fjölliður, sem eru taldar eitraðar fyrir heilann. Með því að hreinsa þetta út þá hægist á einkennum sjúkdómsins samkvæmt þessari rannsókn. Það er eitthvað sem hefur ekki verið sýnt fram á áður, að þessi lyf sem hreinsa út amyloid geti líka haft svona klár áhrif á einkenni, það er það sem við erum að horfa til og fagna,“ segir Steinunn.

Kemur fram að svipað lyf sé komið á markað í Bandaríkjunum; fékk lyfið bráðabirgðaleyfi fyrir einu og hálfu ári; virðist þó ekki vera jafn öflugt og nýja lyfið að sögn Steinunnar:

- Auglýsing -

„Við erum að vonast til að þetta lyf fái flýtimeðferð og komi hratt á markað,“ segir Steinunn.

Bætir því við að ef rannsóknir benda áfram í sömu átt kæmi það Steinunni ekki á óvart að það myndi koma fremur fljótlega til Evrópu:

„Það er erfitt að segja hvort það yrði á næsta eða þarnæsta ári, en þá líka með þeim fyrirvara að það komi ekkert bakslag í þetta, þá erum við að tala um aukaverkanir og fleira.“

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -