Föstudagur 29. mars, 2024
-3.2 C
Reykjavik

„Í jafnréttisparadísinni Íslandi bera konur enn meiri ábyrgð á heimilisstörfum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Bæði innlendar og erlendar rannsóknir benda til þess að ólaunuð vinna mæðra hafi aukist í kórónaveirufaraldrinum. Það er nefnilega þannig í jafnréttisparadísinni Íslandi að mæður bera enn meiri ábyrgð á heimilisstörfum og barnauppeldi,“ þetta skrifar Andrea Sigrún Hjálmsdóttir, félagsfræðingur, gullsmiður og lektor við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri í miðilinn Akureyri.is 

Í pistilinum segir Andrea að lífi okkar flestra hafi verið snúið á hvolf eftir að fyrsta kórónuveirusmitið greindist hér á landi í lok febrúar. Margir vinni nú heima og þegar fólk sé svona mikið heima verði utanumhald heimilislífsins mun yfirgripsmeira en áður. Matseld og tiltekt sé farin að taka óþarflega mikinn tíma í daglegur lífi. Margir foreldrar hafi þannig upplifað mikið álag tengt faraldrinum þegar kemur að heimilislífi – einkum mæður.

„Íslenskir feður hafa sannarlega tekið sig á í að sinna börnum sínum á síðustu árum en heimilisstörfin virðast að einhverju leyti sitja eftir og einnig skipulagsvinnan, sem kölluð hefur verið hugræn byrði (e. mental load), bæði hvað varðar heimilishaldið og börnin. Þegar heimilin fá svo skyndilega í fangið alla þá vinnu sem venjulega fer fram utan heimilis þá lendir sú vinna frekar á mæðrum.“

Andrea segir að pistillinn sé hvatningapistill til karla að taka enn meiri þátt inni á heimilinum. Ekki bara á tímum heimsfaraldurs heldur bara alltaf og ekki bara með því að elda eða henda sneiðum á grillið, heldur að taka þátt í skipulagningu heimilishaldsins. Að hafa frumkvæði að tiltekt, þrifum og þvotti. Halda utan um dagatalið, kaupa jólagjafir, panta tíma í klippingu og áfram mætti lengi telja.

„Við erum nefnilega flest meðvituð um að verkstjórn á vinnustöðum krefst mikillar vinnu og fyrir það fá verkstjórar greitt sérstaklega. Það er líka heilmikil vinna að skipuleggja heimilishald fjölskyldu, en það er bæði ólaunuð og oft ósýnileg vinna en svakalega lýjandi. Það er til mjög mikils að vinna fyrir íslenskar fjölskyldur að dreifa slíku vinnuálagi á milli fullorðinna sambýlinga, svo ekki sé talað um vinnumarkaðinn. Hlutverk í fjölskyldunum eru félagslega lærð sem er svo frábært því þá er hægt að breyta þeim. Tímarnir sem við lifum núna eru sannarlega krefjandi en gefa okkur líka tækifæri til að endurhugsa hlutverk okkar og skipulag í fjölskyldugerðinni. Sumar rannsóknir benda til þess að jafnari verkaskiptingu fylgi meira ástríki í parasamböndum. Sannarlega til mikils að vinna.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -