Föstudagur 3. maí, 2024
5.1 C
Reykjavik

Atli um Þórdísi Kolbrúnu:„Ráðherra er ekki Bankasýslan, ekki stjórn og ekki bankastjóri ríkisbanka“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Atli Þór Fanndal segir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur hafa farið langt út fyrir valdsvið sitt með því að skipta sér að viðskiptum Landsbanka.

Framkvæmdarstjóri Transparency International, Atli Þór Fanndal skrifaði færslu á Facebook þar sem hann tjáir sig um gagnrýni Þórdísar Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, fjármálaráðherra á fyrirhuguðum kaupum Landsbankans á TM en hún hefur sagt að hún muni ekki samþykkja kaupin.

„Fjármálaráðherra fór langt út fyrir valdsvið sitt um helgina þegar hún notar Facebook til afskipta af einstaka viðskiptum Landsbanka. Fyrir utan hvað þetta er amöturleg pólitík þá er það þannig að ráðherra fer ekki með daglegan rekstur eða einstaka viðskipti ríkisbankanna. Ráðherra er ekki Bankasýslan, ekki stjórn og ekki bankastjóri ríkisbanka.“

Þá segir Atli Þór að stjórnarsáttmálinn sé ekki ofar lögum.

„Stjórnarsáttmálinn er sáttmáli stjórnarflokka en rís ekki ofar lögum. Hann er samkomulag flokka um hvert skal stefnt en hefur að öðru leiti ekki bindandi áhrif á nokkurn mann utan stjórnarflokkanna og engum leynist að stjórnarliðar taka nú ekki mikið mark á þessum sáttmála. Það eru lög í landinu og ráðherrar eiga að starfa innan ramma þeirra hvort sem þeir eru að máta formannsstól í eigin flokk eða ekki.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -