Fimmtudagur 25. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Birtir ósvífið bréf leigufélags – Hækkuðu leigu Brynju um 75 þúsund: „Hlökkum til að heyra frá þér“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, birtir á Facebook bréf sem Brynjar nokkur, 65 ára, fékk á dögunum frá leigusala sínum, leigufélaginu Ölmu. Þar er henni kynnt að leiga hennar hafi hækkað um 75 þúsund krónur á mánuði og sé nú 325 þúsund krónur. Ragnar segir bréfið sláandi enda sýni það vel miskunarleysi og græðgi leigufélaga.

Hér fyrir neðan má lesa færslu Ragnars í heild sinni.  

Ég fékk póst frá leigutaka hjá Ölmu leigufélagi sem er vægast sagt sláandi.

Hún heitir Brynja og er 65 ára. Alma býður henni nýjan 12 mánaða leigusamning sem mun taka gildi frá byrjun febrúar á næsta ári með hækkun upp á 75.247kr. á mánuði miðað við vísitölu í nóvember, sem var 555,6 en er komin 560,9. Það þýðir að hækkunin sem henni stendur til boða verður 78.347kr. á mánuði frá og með febrúar næstkomandi en fer að öllum líkindum hækkandi fram að þeim tíma.

Ég ræddi við Brynju seinnipartinn í dag og var samtalið og saga hennar sláandi en því miður ekki einsdæmi. Ég fékk góðfúslegt leyfi hennar til að birta þetta þar sem hún er nauðbeygð til að flytja út þar sem útilokað er fyrir hana að standa undir þessari hækkun.

Brynja er sjúklingur en hefur ávalt staðið í skilum við leigufélagið eins og flestir gera með því að borga leiguna fyrst og lifa á hafragraut megin hluta mánaðarins.

- Auglýsing -

Til að setja þetta í samhengi þyrftum við í verkalýðshreyfingunni að hækka laun um 133.000kr. á mánuði til að hún gæti staðið undir þessum kostnaðarauka. Og þá er allt annað eftir sem hækkað hefur langt úr hófi fram.

Það ætti ekki að koma neinum á óvart að Sjálfstæðisflokkurinn hefur unnið hvað harðast gegn því að leigubremsu verði komið á til að sporna við gengdarlausri græðgi og því miskunnarleysi sem viðgengst á leigumarkaði.

Sjá samskipti leigufélagsins við Brynju sem fékk heldur dapurlega jólagjöf frá leigufélaginu eins og hún orðar það sjálf:

- Auglýsing -

Sæl Brynja,

Nú líður að endurnýjun leigusamnings þíns vegna Hverfisgötu 59, íbúð 102. Núverandi leigusamningur rennur út 31.01.2023 næst komandi. Við viljum endilega heyra frá þér hvort þú hafir hug á því að endurnýja leigusamninginn þinn frá 01.02.2023.

Við getum boðið þér endurnýjun á leigusamningi með grunnleiguverð kr. 325.000.- og upphafsvísitölu 555,6. Athugaðu að upphafsvísitala samnings miðast við nóvember mánuð 2022.

Greiðsla skv. núverandi leigusamningi í nóvember er kr. 249.753,-

Við bjóðum upp á tímabundna leigusamninga til 12 mánaða eða langtímasamninga til allt að 60 mánaða. Innheimt er álag ofan á grunnleiguverð langtímasamninga sem ákvarðast af lengd samnings. Meðfylgjandi er skjal með frekari útskýringum.

Við biðjum þig að láta okkur vita sem fyrst eða í síðasta lagi 01.01.2023 hvort þú komir til með að endurnýja samninginn þinn.

Vertu endilega í sambandi við okkur ef þú hefur frekari spurningar eða ef eitthvað er óljóst.

Hlökkum til að heyra frá þér.

Með kveðju,

Starfsfólk Ölmu

Ég velti því stundum fyrir mér hvert í fjandanum við erum komin sem samfélag.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -