Föstudagur 26. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Brynjar fékk ekki að fara með í hringferð Sjálfstæðismanna: „Nærveru minnar var ekki óskað“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Brynjar Níelsson var beðinn um að halda sig heima þegar þingmenn Sjálfstæðisflokksins hófu hringferð sína um landið í fyrradag.

Varaþingmaðurinn Brynjar Níelsson skrifaði Facebook-færslu þar sem hann gantast með það að ekki hafi nærveru hans verið óskað í hringferð þingmanna Sjálfstæðisflokksins, í fyrradag. „Í morgun hófst enn ein hringferð þingflokks sjálfstæðismanna um landið. Nú á að telja landsmönnum trú um að ríkissjóður sé ekki ótæmandi auðlind og því þurfi að að forgangsraða útgjöldum þegar erfitt er í ári. Jafnframt að benda á að hærri skattar við núverandi aðstæður þýði ekki auknar tekjur ríkisins.“ Þannig hefst færslan en heldur svo áfram: „Nærveru minnar var ekki óskað í þetta sinn. Þingmenn og starfsmenn segi að ég geti ekki haldið trúnað og blaðri öllu úr ferðinni á fésbókinni sem almenning varði ekkert um, jafnvel viðkvæmum og persónugreinanlegum upplýsingum. Þar að auki ljúgi ég blákalt upp á saklaust fólk.“

Í lokaorðum sínum segist Brynjar hafa heyrt hvaða tveir Sjálfstæðismenn hafi mótmælt hvað mest varðandi nærveru hans.

„Mér skilst að Jón Gunnarsson og Guðlaugur Þór hafi mótmælt sérstaklega að ég kæmi með – að öðrum kosti færu þeir ekki. Mér er svo sem alveg sama, finnst hvort eð er nammið í rútunni vont og drykkirnir sem í boði eru henta mér ekki.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -