Laugardagur 27. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Dularfullt strand við Fáskrúðsfjörð – Tók skyndilega 100 gráðu beygju í átt að landi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ekki er vitað hvers vegna tankskipið Key Bora tók skyndilega 90 til 100 gráðu beygju í átt að landi og strandaði tímabundið í fjörunni eftir að hafa lagt úr höfn í Fáskrúðsfirði stuttu áður. Á innan við klukkustund tókst skipinu að losna fyrir eigin vélarafli.

Samkvæmt Austurfrétt var björgunarsveitin Geisli ræst út um leið og ljóst var að hið stóra tangskip hafi farið upp í fjöruna aðeins nokkur hundruð metrum frá bænum. Þá var áhöfn togara sem var í höfninni einnig ræst út til öryggis ef þyrfti að koma mörgum til bjargar. Að sögn Grétars Helga Geirssonar, formanns björgunarsveitarinnar Geisla á Fáskrúðsfirði, kom ekki til þess þó, í samtali við Austurfrétt.

„Það kom góðu heilli ekki til okkar kasta þegar allt kom til alls nema að hjálpa til við að lóðsa skipið af staðnum og í höfn aftur eftir atvikið. Það er enn á huldu samkvæmt skipstjóra Key Bora hvað þarna gerðist. Engin bilun fannst við leit og kafarar sem skoðuðu botn skipsins í kjölfarið fundu ekkert markvert. En skipið tók víst alveg fyrirvaralaust duglega beygju beint upp í land rétt fyrir neðan Kappeyrina hér í firðinum. Skipstjórinn setti umsvifalaust allt í bakk sem þýddi að skipið beygði enn frekar og tók svo niður í kjölfarið.“

Skipverjar tæmdu ballast framan í skipinu sem dugði til þess að losa skipið af strandstaðnum.

„Við fylgdum því svo til hafnar þar sem menn fóru yfir þetta auk þess sem kafarar voru sendir til að skoða botn og skrúfu þess en það hélt svo för sinni áfram að því loknu því ekkert athugavert fannst.“


 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -