Fimmtudagur 25. apríl, 2024
10.1 C
Reykjavik

Eiginkona dómsmálaráðherra birti umdeilda færslu um flóttafólk: „Þetta er ömurlegur whataboutismi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Eiginkona Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra deildi umdeildri færslu á Facebook um hælisleitendur í gær.

Öll spjót hafa beinst að Dómsmálaráðuneitinu síðustu vikur vegna harkalegra aðgerða lögreglunnar gegn hælisleitendum á Íslandi en 13 voru send til Grikklands þar sem fátt bíður þeirra annað en gatan eða yfirfullar flóttamannabúðir. Virðist sem fólk skiptist í tvær fylkingar varðandi málið, þar sem önnur fylkingin vill leyfa fólki sem hingað sækir um hæli, að vera hér og auðga mannlífið á meðan hin fylkingin vill ekki hleypa fólki í neyð inn í landið, nóg sé af fólki fyrir í neyð hér á landi.

Í færslu sem Guðfinnur nokkur birti á Facebook um daginn er ljósmynd af Herberti Marínóssyni sem lengi bjó á götunni en hann lést fyrir nokkrum árum. Textinn í færslunni er eftirfarandi (óbreyttur):

„Þessi maður er um áttræt og hefur verið meira og minna á götun alla sína æfi sofið út í hvaða veðri sem er ,það er hlýra á Grikklandi .Ekki hef ég seð mótmæli á Austurelli fyrir þetta fólk,eða hávær köllu úr þingsala Alþingis ,Viðreisn Pírötum og öðrum Vinstri Gapuxum til aðstoðar þessum nú varð maður úti í Skeifunni ekki bopps frá þessu lið það æti að skammast sín ef það hefur vit til þess“

Færslan vakti úlfúð sumra en kona ein biður færslueigandann um að gefa Herberti frið:

„Leyfðu Herbert að hvíla í friði! Þú ert með áráttuhegðun Guðfinnur! Að sífellt birta mynd af löngu látnum manni.“

- Auglýsing -

Þá skrifaði annar eftirfarandi athugasemd:

„..það er engin félagsþjónusta á Grikkland fyrir fólk á flótta. Það er ekki hægt að bera bara saman veðrið og láta eins og þetta sé útópía.

Ég hvet þig annars að skipuleggja mótmæli með heimilislausu fólki, því það er margt ábótavant í þjónustu við þau… það gerir meira fyrir þennan hóp sem þér þykir augljóslega vænt um. Eintómt væl á Facebook gerir ekkert fyrir heimilialausa.
Þessir hópar eru annars ekki annaðhvort eða… það er nóg til af peningi, það er vilji fjármálaráðherra, sem er Sjálfstæðismaður.“

Halla Ragnarsdóttir, eiginkona Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra deildi færslunni í gær en í athugasemd er hún sökuð um svokallaðan „whataboutisma“:

- Auglýsing -

„Þetta er ömurlegur whataboutismi. Mæli með að lesa þetta https://m.facebook.com/story.php?story_fbid=10160460127383679&id=693003678

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -