Föstudagur 19. apríl, 2024
0.1 C
Reykjavik

Elva Björg valin Mosfellingur ársins

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Mosfellingur ársins 2021 er Elva Björg Pálsdóttir forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ, en bæjarblaðið Mosfellingur stendur fyrir valinu. Elva Björg er tómstunda- og félagsmálafræðingur og hóf störf sem leiðbeinandi í handavinnu árið 2010 og tók svo við starfi forstöðumanns 2013 hjá Mosfellsbæ.

„Ég er bara mjög snortin, ég átti alls ekki von á þessu,“ segir Elva Björg þegar henni er tilkynnt um nafnbótina.

„Ég er fyrst og fremst þakklát og þið eruð að koma mér rosalega á óvart. Þetta er mjög skemmtileg byrjun á árinu og gaman að fá klapp á bakið. Ég vil auðvitað tileinka öllum eldri borgurum í Mosfellsbæ þessa viðurkenningu,“ bætir hún við þegar hún fréttir að undirskriftalistar hafi gengið manna á milli með áskorun um að velja hana Mosfelling ársins. Eldri borgarar eru greinilega mjög ánægðir með hennar störf.

„Ég finn fyrir þakklæti í mínu starfi á hverjum degi og það eru sannkölluð forréttindi að vinna með eldri borgurum. Hjá okkur er gleði alla daga og á bakvið hvert andlit býr svo mikil saga sem gaman að er að fræðast um. Það er ekki sjálfgefið að vinna við það sem gefur manni svona mikið í lífinu.

Mitt starf er fólgið í því að vera eldra fólkinu innan handar enda er ég fyrst og fremst að vinna fyrir þau. Þau eiga jafnan frumkvæðið að því sem þau vilja gera og í sameiningu setjum við upp skemmtilega dagskrá.

Það er auðvitað krefjandi á tímum Covid að halda starfseminni gangandi en við höfum náð að halda okkar striki ótrúlega vel í gegnum þetta allt saman. Stjórnvöld eru líka búin að greina það að mikilvægara sé að halda úti starfsemi þessa aldurshóps en að setja á frost.

- Auglýsing -

Tómstundir eru ekki bara fyrir fólk sem vill sitja og prjóna. Það er svo margt hægt að gera og öll viljum við verða gömul og búa okkur vel í haginn.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -