Fjórir aðilar hafa greinst með berkla það sem af er ári en var það Fréttablaðið greindi frá í morgun. „Við bregðumst alltaf hratt við þegar svona tilvik koma upp, enda tökum við þau alvarlega,“ sagði Erna Milunka Kojic, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar, í samtali við Fréttablaðið. Einn þeirra smituðu hefur verið lagður inn á Landspítalann. Þá var stór hópur, tengdur viðkomandi, sendur í rakningu í kjölfarið þar sem þrír aðrir hafi greinst með berkla.
Að sögn Ernu getur bakterían setið í líkama fólks árum saman án þess að það veikist. Berklasýkingin sé því flókið fyrirbæri. Berklar voru illviðráðanlegir á síðustu öld og létust þúsundir manna vegna þeirra. Það var um miðja öld sem loks fannst lækning við sjúkdóminum. Enn greinist fólk af og til á Íslandi en segir Erna íslenska heilbrigðiskerfið mjög vel í stakk búið til að takast á við sjúkdóminn.