Laugardagur 20. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Fótaveikur maður á hlaupahjóli skapaði hættu – Kona á harðahlaupum með bókunartölvu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Maður í miðbænum sem kvartaði yfir því að vera þjáður af verk í fæti hafnaði aðstoð. Eftir nokkurt þóf greip hann rafmagnshlaupahjól og þaut af stað. Með því olli hann stórhættu og mátti minnstu muna að hann æki niður vegfaranda. Maðurinn var í annarlegu ástandi. Lögreglan náð að stöðva för hans. Sá fótaveiki var læstur inni í fangaklefa þar sem hann liggur nú og sefur úr sér. Hans bíður að horfast í augu við syndir sínar i morgunsárið.

Um svipað leyti barst tilkynning um þjófnað frá veitingastað í miðborginni.  Fingralöng kona kom inn á veitingastaðinn. Í stað þess að bíða eftir að fá borð stal hún bókunartölvu staðarins og tók á sprettinn út í kvöldið. Upptökur náðust af konunni og er vitað hver hún er. Hæun má eiga von á heimsókn frá lögreglunni.

Á öðrum veitingastað varð uppnám þegar konu var hrint niður stiga. Hún fékk höfuðhögg og var með skerta meðvitund. Hún var flutt á Bráðadeild en ekki er vitað um líðan hennar.

Á byggingarsvæði í austurborg Reykjavíkur sást dularfullur maður með bakpoka á sveimi. Lögreglan brá skjótt við og náði manninnum sem var-með verkfæri í bakpokanum, sem hann gat ekki gert grein fyrir. Hann hvílir nú í fangaklefa, grunaður um þjófnað og húsbrot.

Nokkuð var um umferðarlagabrot. Bifreið stöðvuð á Vífilstaðaveg.  Ökumaðurinn er grunaður um ítrekaðan akstur án þess að hafa ökuréttindi. Þá var hann undir áhrifum áfengis en undir refsimörkum.

Þá var bifreið stöðvuð í Garðabæ eftir að ökumaðurinn ók yfir gatnamót gegn rauðu ljósi.   Ökumaðurinn lagði í fyrstu á flótta undan lögreglu en stöðvaði stuttu síðar. Hann er grunaður um að hafa verið drukkinn undir stýri.

- Auglýsing -

Fleiri slíkir háskagripir voru teknir úr umferð í nótt.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -