Föstudagur 26. apríl, 2024
2.6 C
Reykjavik

Gylfi er sakaður um ítrekuð kynferðisbrot – Saksóknaraembætti bresku krúnunnar íhugar næstu skref

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Rannsókn á máli Gylfa Þórs Sigurðssonar er lokið og komið inn á borð Saksóknaraembættis bresku krúnunnar.

Fréttablaðið greinir frá því í dag að mál fyrrum fyrirliða íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, Gylfa Þórs Sigurðssonar, sem snéri að grun um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi, sé komið inn á borð Saksóknaraembættis bresku krúnunnar en Gylfi var handtekinn í júlí árið 2021.

„Við fengum í hendurnar gögn frá lög­reglunni á Grea­ter Manchester svæðinu þann 31. janúar síðast­liðinn í kjöl­far rann­sóknar hennar á á­sökunum um ítrekuð kyn­ferðis­brot. Við erum þessa stundina að leggja mat á gögnin í sam­ræmi við okkar ferli,“ segir í svari talsmanns Sak­sóknara­em­bættis bresku krúnunnar við fyrir­spurn Frétta­blaðsins.

Nú er það svo í höndum saksóknaraembættisins að ákveða næstu skreft, þá hvort ákært verði í málinu eða það fellt niður. Segist embættið ekki geta sagt til um nákvæmlega hvenær næstu skref í málinu verða tekin. Þykir embættinu óskynsamlegt að tjá sig frekar á þessu stigi málsins.

Lögfræðingar saksóknaraembættisins verða að fylgja sér regluverki fyrir ríkissaksóknara er ákvörður er tekin um hvort ákæra skuli í sakamáli eður ei.

„Þetta þýðir að til að á­kæra ein­hvern fyrir refsi­verðan verknað verða sak­sóknarar að ganga úr skugga um að nægar sannanir séu fyrir hendi til að gefa raun­hæfar líkur á sak­fellingu og að á­kæra sé í þágu al­manna­hags­muna,“ segir í svari sak­sóknara­em­bættisins við fyrir­spurn Frétta­blaðsins.

- Auglýsing -

Ekki vildi embættið svara því hversu margir hafi verið yfirheyrðir í málinu og vildi ekki tjá sig meira að svo búnu um það.

Málið hefur tekið gríðarlega langan tíma að rannsaka en Gylfi Þór hefur verið laus gegn tryggingu frá því fljótlega eftir handökuna þann 16. júlí 2021. Það fyrirkomulag hefur svo verið framlengt nokkrum sinnum.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -