Miðvikudagur 24. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Hjúkrunarfræðingar samþykktu nýjan kjarasamning – Þátttaka nokkuð góð

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við Reykjavíkurborg hefur verið samþykktur.

Atkvæðagreiðsla vegna kjarasamnings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við Reykjavíkurborg fór fram dagana 14. apríl kl. 10:00 til 19. apríl kl. 12:00. Á kjörskrá voru 97, eða þeir hjúkrunarfræðingar sem fengið höfðu laun skv. kjarasamningi félagsins við Reykjavíkurborg. Alls tóku 72 þátt í atkvæðagreiðslunni eða 74,2 prósent.

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já sögðu 47 eða 65,2 prósent

Nei sögðu 22 eða 30,6 prósent

Þrír, eða 4,2 prósent, tóku ekki afstöðu.

- Auglýsing -

Því hefur kjarasamningur, undirritaður þann 4. apríl 2023, verið samþykktur af atkvæðabærum félagsmönnum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og tekur því nýr samningur gildi frá 1. apríl 2023 og gildir til 31. mars 2024.

Atkvæðagreiðslu um samning FÍH við ríkið lýkur á hádegi mánudaginn 24. apríl næstkomandi.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -