Miðvikudagur 27. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

Katrín Jakobs gifti sig í skyndi: „Brúðkaupsnóttin fór í að hjálpa gubbandi barni“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands fagnaði brúðkaupsafmæli sínu í gær en þau Gunnar Sigvaldason hafa verið gift í 15 ár. Þau fögnuðu þó í sitthvoru landinu í ár.

Katrín skrifaði færslu á Facebook í gær þar sem hún segir frá brúðkaupsafmælis þeirra hjóna. Hún rifjar upp þegar þau ákváðu í skyndi að gifta sig árið 2007 en því héldu þau leyndu fyrir flestum. Segir hún að brúðkaupsnóttin hafi ekki verið eins skemmtileg og þær oft eru:

„Í dag höfum við Gunnar verið gift í fimmtán ár. Við fögnum þessu brúðkaupsafmæli hvort í sínu landinu þar sem ég sit í dag leiðtogafund JEF-samstarfsins í Riga en hann er heima á Íslandi.

Við giftum okkur nokkuð skyndilega árið 2007 og sögðum örfáum frá þeirri àkvörðun, ég var þá komin á steypirinn og sonur 2 kom í heiminn á gamlársdag sama ár. Við giftum okkur hjá Sýslumanni og fórum svo með elsta syninum á Hornið og Ísbúð Vesturbæjar. Við komumst að því þetta kvöld að líklega væri barnið með mjólkurofnæmi þar sem brúðkaupsnóttin fór i að hjálpa gubbandi tveggja ára barni sem hafði fengið sér ótæpilega af ís.“

Þá segir Katrín einnig í færslunni að síðustu 15 ár hafi verið viðburðarík, stundum erfið en þó fyrst og fremst farsæl. Talar hún einnig um þeirra verstu stundir og þeirra bestu:

„En fall er fararheill og þetta 15 ára ferðalag hefur verið viðburðaríkt, stundum erfitt, oft skemmtilegt en fyrst og fremst farsælt.

Verstu stundirnar eigum við þegar við setjum saman húsgögn eða erum saman í bíl því við eigum það sameiginlegt að vita allt best. Bestu stundirnar eru þegar við hlæjum saman að einhverri vitleysu sem við gerum sem betur fer oft – og alltaf eftir þessar erfiðu stundir!“

- Auglýsing -

Næstu orð forsætisráðherrans sýna hversu lítið Ísland er því þar segir hún frá því er þau hjónin hjálpuðust að við snjómokstur en í flestum löndum þyrftu þjóðarleiðtogar ekki að moka sjálfir snjóinn í heimreiðinni:

„Við sýndum til dæmis nokkra snilldartakta núna á laugardaginn þegar mér fannst það góð hugmynd að keyra í ófærð og stórhríð til að græja nokkrar jólagjafir. Eftir afar hægan akstur úr Vesturbæ í Kringluna þar sem ég tók mitt hlutverk sem aðstoðarökumaður mjög alvarlega við litlar vinsældir vorum við sammála um að þetta hefði mögulega ekki verið frábær hugmynd! Eftir að hafa komist klakklaust heim enduðum við á kafi í snjómokstri (á meðan enn kyngdi niður snjó) þar sem við vissum að sjálfsögðu bæði best hvernig ætti nákvæmlega að moka snjó með sem skilvirkustum hætti og þessi mynd er tekin í miðju því samtali.
Það eru allar þessar stundir sem láta kannski ekki mikið yfir sér en sem ég er þakklát fyrir alla daga og gera lífið svo mergjað.“
Katrín og Gunnar moka snjó.
Ljósmynd: Facebook

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -