Mánudagur 6. maí, 2024
3.8 C
Reykjavik

Krefjast gæsluvarðhalds sex einstaklinga – Þolendur mannsals taldir skipta tugum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þrír karlar og þrjár konur eru í haldi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir umfangsmiklar aðgerðir í gærdag, en í dag verður krafist vikulangs gæsluvarðhalds yfir þeim öllum á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum var tilefni aðgerðanna rökstuddur grunur um mansal, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og grunur um skipulagða brotastarfsemi og tengjast meðal annars veitingastöðunum Pho Vietnam og Wok On.

Aðgerðirnar, sem fóru fram á höfuðborgarsvæðinu og víðar, stóðu yfir í allan gærdag og gengu vel fyrir sig. Á annað hundrað manns tóku þátt í þeim, þar af um áttatíu starfsmenn lögreglu og nokkur fjöldi starfsfólks stofnana sem veittu liðsinni við aðgerðirnar. Samtals voru framkvæmdar um tuttugu og fimm húsleitir.

Við rannsókn málsins hefur verið rætt við töluvert af fólki sem grunsemdir eru um að séu þolendur mansals en talið er að þeir skipti tugum.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -