Kristinn Hrafnsson kallar tímann sem það tók breskt réttarkerfi að úrskurða að Gylfi Þór yrði ekki kærður, ríkisglæp.
Ritstjóri Wikileaks tjáði sig eins og margir aðrir, um mál Gylfa Þórs Sigurðssonar, sem ákveðið var að kæra ekki, eftir að hafa haft réttarstöðu grunaðs í kynferðisbrotamáli gegn ólögráða einstaklingi. Það gerði Kristinn á Facebook og bendir á að tíminn sem það tók að komast að þessari niðurstöðu væri glæpur gegn bæði Gylfa og meintum brotaþola.
„Hef séð nægjanlega mikið af bresku réttarkerfi að geta sett það í ruslflokk. Að það taki nærri tvö ár að úrskurða að engar líkur séu á sakfellingu í máli sem getur ekki verið flókið rannsóknarefni, er forkastanlegur tími. Það er í sjálfu sér ríkisglæpur sem snýr bæði gegn meintum brotamanni og meintum brotaþola.“