- Auglýsing -
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Margréti Magnúsdóttur 82 ára sem fór frá heimili sínu að Lundi 19 í Kópavogi um klukkan fimm í nótt. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að Margrét þjáist af minnisglöpum.
„Hún er í röndóttum náttkjól og hvítum inniskóm. Við biðjum fólk að athuga nærumhverfi sitt. Lögregla og björgunarsveitir hafa verið að leita í nótt.
Við biðjum þá sem verða varir við Margréti að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112,“ segir í tilkynningunni.
Uppfært: Búið að finna konuna