Kalla þurfti til lögreglu í gærkvöldi vegna ölvunar á menntaskólaballi sem fór fram miðborginni. Svo virðist sem ungmennin hafi ekki farið eftir settum reglum. Ökumaður bifreiðar var stöðvaður í gærkvöldi. Komst lögregla þá að þvi að maðurinn dvaldi ólöglega í landinu en auk þess fundust fíkniefni í bifreiðinni. Maðurinn var handtekinn og látinn gista í fangaklefa lögreglu.
Kalla þurfti til lögreglu annað kvöldið í röð á bráðamóttökuna en þar var aðili sem neitaði að yfirgefa slysadeild. Lögregla ók manninum til síns heima. Skömmu síðar var lögregla kölluð í kvikmyndahús þar sem aðili hafði læst sig inni á salerni. Lögregla náði að bjarga viðkomandi út af klósettinu. Þá barst lögreglu tilkynning um líkamsárás í hverfi 103 og slagsmál í hverfi 105. Nokkuð var um læti og fyllerí í miðbænum og var nóttin hjá lögreglu annasöm þennan fimmudaginn.
Maður dvaldi ólöglega á landinu en þessu komst lögregla einnig að um viðkomandi

Helgarviðtalið
- Auglýsing -
Orðrómur
- Auglýsing -
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -