Föstudagur 19. apríl, 2024
1.1 C
Reykjavik

Miðstöð fyrir fólk frá Úkraínu opnuð við KR völlinn: „Mér leið ekki vel í vinnunni þessa daga“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hentugt húsnæði var tryggt í byrjun vikunnar og mætti starfsfólkið næsta dag til að hefja undirbúning. Allt hefur þurft að gerast hratt og allir í hópnum sáttir og ánægðir með að taka þátt í verkefninu. Það gerir þeim kleift að einbeita sér að því að hjálpa fólki frá sínu gamla heimalandi en mörg höfðu reynt að svara símtölum og skilaboðum samhliða sinni vinnu. Ein úr hópnum lýsir því hvernig hún mætti til dæmis eftir vinnu alla daga til að sinna hjálparstarfi.

„Ég var að frá átta á morgnana til níu eða tíu á kvöldin. Á vinnutíma var ég með heilan bekk af börnum sem ég gat varla stjórnað og fannst frábært að geta einbeitt mér að þessu,“ segir Oksana Shabatura í samtali við Hrund Þórsdóttur, upplýsingafulltrúa Ráðhúss Reykjavíkur hjá Reykjavíkurborg. Oksana er umsjónarkennari 2. bekkjar í Fellaskóla og hefur búið á Íslandi í 18 ár. Hún lýstir því hvað það hefur reynst erfitt að halda áfram með daglegt líf á sama tíma og stríðsástand er í heimalandinu vegna innrásar Rússa.

„Mér leið ekki vel í vinnunni þessa daga. Ég kom á kaffistofuna, þar var fólk að hlæja, tala, undirbúa árshátíð og lifa eðlilegu lífi og ég var vön að vera alltaf með. Svo opna ég símann og sé hús í rúst og börn drepin. Hjarta mitt springur en ég heyri hlátur í kringum mig. Þannig að ég er rosalega ánægð að fara í þetta og vera með fólki sem skilur mig og er í sama gír og ég. Við skiptumst á upplýsingum og getum þannig hjálpað enn meira,“ segir Oksana.

Mikilvægi fjölbreytts starfsmannahóps með ólíkan bakgrunn sannast nú við opnun Skóla- og fjölskyldumiðstöðvar fyrir úkraínsk börn og fjölskyldur þeirra. Miðstöðin verður opnuð í dag, fimmtudag, í frístundamiðstöðinni Tjörninni við KR völlinn. Sex úkraínskumælandi starfsmenn úr skólum borgarinnar halda utan um starfsemina þar sem þátttaka foreldra verður nauðsynlegur þáttur.

Skóla- og fjölskyldumiðstöð fyrir flóttafólk frá Úkraínu opnuð

Fannst erfitt að taka þátt í gleðinni á kaffistofunni

Árni Valdason er sérkennari í Klettaskóla og hefur búið á Íslandi í átta ár. „Ég var líka upptekinn í vinnunni því allir voru að hringja. Ég skrifaði bréf til Helga [Grímssonar, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs] og hann svaraði og sagði að það væri hópur til að hjálpa flóttamönnum og nú er ég í honum,“ segir Árni sem fór skömmu eftir innrásina ásamt manni sínum til Póllands til að sækja foreldra hans sem þá voru að reyna að komast að pólsku landamærunum.

- Auglýsing -

 

Bæði segja þau Oksana og Árni mikilvægt að úkraínsku foreldarnir taki þátt í starfsemi fjölskyldumiðstöðvarinnar og sjái um umönnun ungra barna. Þau vonast til að í hópnum leynist kannski myndlistar- og tónlistarfólk, og jafnvel íþróttakennarar. Enn er óvíst hversu mörg börn og foreldar munu sækja Skóla- og fjölskyldumiðstöðina og hvort opna þurfi á fleiri stöðum. Um 200 börn hafa komið til Reykjavíkur frá því innrásin hófst.

HÉR má lesa viðtal Reykjavíkurborgar við Oksönu í heild sinni og fræðast um þetta nýja spennandi verkefni.

- Auglýsing -

Í þessu verkefni sannast hversu mikilvægt það er fyrir vinnustaði að hafa starfsfólk með ólíkan bakgrunn í starfsliði sínu. Ásamt þeim Árna og Oksönu munu starfa Luba frá leikskólanum Miðborg (22 ár á Íslandi), Alina sem vinnur í leikskólanum Björtuhlíð (rúm 8 ár á Íslandi), Katarina sem vinnur á frístundaheimilinu Guluhlíð við Klettaskóla (5 ár á Íslandi) og Tetiana frá leikskólanum Hlíð.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -