Minningarathöfn um Harald Loga Hrafnkelsson, sem lést af slysförum á heimili sínu á Tenerife fyrr á árinu, fer fram í dag.
Minningarathöfnin verður haldin í dag, á 50 ára afmælisdegi Haraldar Loga. Segist ekkja hans, Drífa Björk Linnet, vonast til að sjá sem flesta „svo við getum fagnað lífi þessa yndislega eiginmanns míns sem við elskuðum svo heitt,“ í færslu á Facebook sem Mannlíf fékk leyfi til að birta.
„Á 50 ára afmælisdegi hans höldum við minningarathöfn og vona ég heitt og innilega að ég sjái ykkur sem flest svo við getum fagnað lífi þessa yndislega eiginmanns míns sem við elskuðum öll svo heitt
Þín D“
Minningarathöfnin fer fram í Lindakirkju í Kópavogi klukkan 17:00 í dag.