Laugardagur 27. júlí, 2024
10.8 C
Reykjavik

Óhugnalegar lýsingar: „Ef við lendum í átökum byrjum við á því að gjöreyða Reykjavík“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Stefán Karlsson, stjórnmálafræðingur og fyrrverandi framhaldsskólakennari á eftirlaunum, segir að heimurinn virðist vera á brún hengiflugs þar sem kjarnorkustríð virðist vera yfirvofandi. Stefán ræðir þessar hugleiðingar í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. Ekki er ólíklegt að mörgum hafi brugðið í brún við að lesa upphafið af pistlinum hans sem byrjar á eftirfarandi orðum:

„Ég ætla að hefja umræðuna á tveimur sögum, sem ég hef heyrt, og ég sel þær ekki dýrar en ég keypti þær. Önnur þeirra er höfð eftir Íslendingi sem var eitt sinn staddur á bar í Moskvu,“ segir Stefán og bætir við að þessi Íslendingur hafi hitt mann sem reyndist vera skipstjóri á rússneskum kjarnorkukafbáti.

„Þessi maður spurði landa okkar hvaðan hann væri og þegar hann heyrði svarið sagði hann: „Já, Ísland er í Atlantshafsbandalaginu og þar hafa Bandaríkin hernaðaraðstöðu. Við beinum kjarnorkuflaugum okkar að Reykjavík og ef við lendum í átökum við Vesturveldin byrjum við á því að gjöreyða höfuðborg ykkar þeim til viðvörunar og segjum svo við yfirstjórn NATO; þessa erum við megnugir. Viljið þið meira?“

Stefán lýsir annarri sögu og er höfð að hans sögn eftir Vladimír Pútín Rússlandsforseta.

„Hann ólst upp við mikla fátækt í Leníngrad. Fjölskylda hans bjó í blokkaríbúð og þar var mikill rottugangur. Eitt sinn var þessi tilvonandi forseti að leika sér að því að smala saman rottunum og króa þær af út í horni. Þá tók ein rottan sig skyndilega út úr hópnum og stökk beint framan í andlitið á honum. Það er haft eftir Pútín að hann hafi lært af þessu atviki að það sé óráðlegt að þrengja svo að öðrum að þeir grípi til óyndisúrræða í örvæntingu sinni.“

Stefán fer svo yfir innrásarstríð Rússa í Úkraínu og segir að átökin í landinu séu mikill harmleikur.

- Auglýsing -

„Þjáningar íbúanna eru ólýsanlegar og eyðileggingin gríðarleg. Rússar bera mikla ábyrgð því engum ætti að vera heimilt að ráðast inn í fullvalda ríki. En ábyrgð Bandaríkjanna og NATO er líka mikil. Það hefði vel mátt koma í veg fyrir hörmungarnar,“ segir Stefán meðal annars í grein sinni sem má lesa í heild sinni hér.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -