Ragnar þór Ingólfsson formaður VR hefur gefið út tillögur um hvað annað megi gera en að hækka stýrivexti. Í færslunni skýtur hann föstum skotum í átt Ásgeirs Jónssonar Seðlabankastjóra Ísland. Tillögurnar skrifaði Ingóldur Þór á samfélagsmiðlinum Facebook.
Í færslunni listar Ragnar upp 14 atriðum og bendir á að stýrivaxtahækkanir taki allt frá sex og upp í fjórtán mánuði að skila tilskyldum áhrifum út í hagkerfið. Hann telur aðferðir Seðlabankastjórans einsleitar og bendir á hvaða aðrar stefnur hefði getað verið teknar eins og til dæmis að hækka einvörðungu vexti á ný lán sem og að beina útlánum í ríkara mæli í uppbyggingu á húsnæðismarkaði.
Hlustar ekki á ráðleggingar sérfræðinga
Ingólfur ásakar Seðlabankastjórann um að hafa ekki farið eftir ráðum Seðlabankastjóra Evrópu sem ku hafa bent á að stýrivextir dugi að takmörkuðu leyti á þá verðbólgu sem nú geysi í heiminum. Að sama skapi hefði Ásgeir átt að hlusta á Dr. Ásgeir Brynjar Torfason sem hefur bent á að bankarnir hafa að ástæðulausu fylgt vaxtahækkunum Seðlabankans.
Færslu Ragnars Þórs má lesa hér að neðan: