Jón Gnarr segir Ísland hafa verið norska hjálendu á Víkingaöld en ekki dvalarstaður víkinga.
Grínistinn og fyrrum borgarstjórinn Jón Gnarr skrifaði færslu í gær á Twitter sem gæti stuðað suma. Þar segist hann ekkert hafa séð sem benti til þess að hér hafi verið víkingahernaður á Víkingaöld og í raun hafi Ísland aðeins verið norsk hjálenda.
„Ísland var vissulega hluti af norrænu samfélagi á víkingaöldinni svökölluðu og þá auðvitað sem norsk hjálenda. hér var byggð og útgerð en ég sé ekkert benda til þess að hér hafi víkinga hernaður verið stundaður og Ísland fráleitt e-ð víkinga beis. bara friðsemd, vinna og bisness,“ skrifaði Jón og fékk þó nokkur viðbrögð.
Kolbeinn nokkur var sammála Jóni: „Ísland var ágætur staður fyrir kappa til að setjast í helgan stein hugsa ég.“
Elín nokkur (mögulega skyld Kolbeini nokkrum) skrifaði áhugaverða athugasemd og setur Ísland nútímans í samhengi við fortíðina: „Bisniss+Víkingaöld = Sama shitshow og í dag. Vopnin þó öllu frumstæðari þar sem Panama var ekki m bankaþjónustu f okkur. Landnám og eignaskipti áttu sér ekki stað með handabandi og kaupsamningum. Það var barist,myrt og konum rænt til landsins,auðlindir var barist/myrt fyrir.“
Enn einn af nokkur-ættinni, Bragi skrifaði athugasemd í heimspekilegum stíl: „Þú meinar þrældóm er það ekki. Við erum en þrælar og engin af okkur er 100% frjáls.“
Ein manneskja virtist sárna færsla Jóns en hún kallar sig einfaldlega H.V.: „“Friðsemd og vinna“. Hefurðu lesið Íslendingasögurnar?“