Fimmtudagur 28. mars, 2024
1.8 C
Reykjavik

Silja vekur athygli á merkilegum konum: „Við erum búin að ná svo ótrúlega langt á stuttum tíma“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Silja Hinriksdóttur er margt til lista lagt sem hefur meðal annars í gegn um tíðina starfað sem myndlistarkona og vefhönnuður. Nú hefur hún farið að stað með spennandi verkefni til að vekja athygli á konum sem hafa haft áhrif á mannkynssöguna og samfélagið í heild sinni – en hafa ef til vill ekki fengið næga athygli fyrir.

Markmið verkefnisins er að fjalla um áhrifamiklar konur sem hafa veitt Silju sérstakan innblástur í gegnum ævina.

Verkefnið hefur hlotið nafnið Tiny Toast sem gefur skírskotun í að skála fyrir ákveðnum viðburðum eða einstaklingum.


Af Hverju ákvaðstu að fara af stað með þetta verkefni?

„Ég vildi bara vekja athygli á öllum þessum frábæru konum. Það fór alltaf  í taugarnar á mér hvað mér fannst halla á konur í myndlist þegar ég var myndlistarnámi út í London og það hefur eflaust haft áhrif á mig,“ sagði Silja og hélt áfram. „Móðir mín er einnig mikill feministi og var í Rauðsokkunum á sínum tíma og hún hefur alltaf hvatt mig til að spyrja spurninga. Af hverju eru t.d. söluhæstu listamennirnir allt karlmenn? Stundum nær kannski ein kona á top 10 listann, en af hverju eru þær ekki fleiri?“

- Auglýsing -

Hvað ertu að vonast til að fá út úr þessu verkefni?

„Bara helst smá vitundarvakningu. Við erum búin að ná svo ótrúlega langt á stuttum tíma þegar það kemur að jafnrétti, en það má alltaf gera betur.“ 

 

- Auglýsing -

 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -