Íbúar í Butte í Montana í Bandaríkjunum sáu heldur betur óvænta sjón á götum bæjarins í gær en þá hafði fíll sloppið frá sirkus sem var að ferðast í gegnum bæinn. Ekki liggur fyrir hvernig fílinn slapp en hann hikaði ekki við að teygja aðeins úr löppunum en smávegis umferðartafir urðu vegna fílsins. Fílinn hélt mest til á bílastæði hjá bensínstöð og spilavíti. Þrátt fyrir að fílinn hafi ekki verið laus lengi náði hann að skilja eftir risastór kúk eftir í bakgarði við hús í bænum. Eflaust munu íbúar Butte og fílinn aldrei gleyma gærdeginum.