Sunnudagur 5. maí, 2024
6.1 C
Reykjavik

Skoðanakönnun Maskínu – Gríðarleg óánægja með innviðaráðherra í húsnæðismálum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Gríðarleg óánægja er með ríkisstjórnina hvað varðar uppbyggingu húsnæðismála samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu.

Samtök leigjenda sendi frá sér fréttatilkynningu í gær þar sem farið er lauslega yfir niðurstöðu skoðanakönnunar Maskínu um ýmsa þætti er snúa að leigumarkaðinn. Fréttatilkynningin er eftirfarandi:

Maskína gerði skoðanakönnun fyrir Samtök leigjenda á Íslandi um ýmislegt er varðar leigumarkaðinn, meðal annars um afstöðu almennings gagnvart því sem hvernig ríkisstjórmin stæði sig í húsnæðismálum.

Spurt var: Hversu vel eða illa finnst þér ríkisstjórnin hafa staðið sig í uppbyggingu húsnæðismála? Og: Hversu vel eða illa finnst þér Innviðaráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson hafa staðið sig í uppbyggingu húsnæðismála?

Niðurstaðan varð sú að 5,3% sögðu að ríkisstjórnin hefði staðið sig mjög eða fremur vel en 67,1% mjög eða fremur illa. 27,7% sögðu ríkisstjórnina hafa staðið sig hvorki vel né illa.

Niðurstaðan varðandi Sigurð Inga sérstaklega varð sú að 7,7% sögðu að Sigurður Ingi hefði staðið sig mjög eða fremur vel en 59,8% mjög eða fremur illa. 32,5% sögðu ríkisstjórnina hafa staðið sig hvorki vel né illa.

- Auglýsing -

Af þessu má vera ljóst að fáum landsmönnum finnst ríkisstjórnin eða innviðaráðherra standa sig vel í uppbyggingu húsnæðismála, sem þó er að flestra mati eitt allra mikilvægasta viðfangsefni ríkisstjórnarinnar.

Könnunin var gerð dagana 15.-22. júní síðastliðinn og voru svarendur
966.

Fyrir hönd Leigjendasamtakanna.
Yngvi Ómar Sighvatsson

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -