Föstudagur 29. mars, 2024
-3.2 C
Reykjavik

Sólveig óskar þess að gleyma aldrei gærdeginum: „Hann var einstakur eins og allt fólkið á myndinni“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Eflingar­fólk alls staðar að úr heiminum, vinnu­afl höfuð­borgar­svæðisins, kom saman til að ræða sín Eflingar-mál af þeirri al­vöru sem um­ræðu­efnið kallar á en einnig af þeirri sönnu bar­áttu­gleði sem ein­kennir allar sannar Eflingar-sam­komur,“ skrifaði Sólveig Anna á Facebook-síðu sína í gærkvöldi eftir að fundi Samninganefnd Eflingar lauk. Morgunblaðið greindi frá því í morgun að ástæða sé til að ætla að verkfallsaðgerðir verði boðaðar í dag en Samninganefnd sleit kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins þann 10. janúar síðastliðinn. Í Facebook-færslu Sólveigar sagði hún magnaðan Eflingar-dag að kvöldi kominn en færsluna má lesa í heild sinni hér að neðan.

„Enn annar magnaður Eflingar-dagur að kvöldi kominn: Eflingarfólk allstaðar að úr heiminum, vinnuafl höfuðborgarsvæðisins, kom saman til að ræða sín Eflingar-mál af þeirri alvöru sem umræðuefnið kallar á en einnig af þeirri sönnu baráttugleði sem einkennir allar sannar Eflingar-samkomur.

Hvernig getur íslensku auðvaldi dottið til hugar að það eigi eitthvað í þetta einvalalið fólks sem veit að það er algjörlega ómissandi og er tilbúið til að sýna fram á það með eins skýrum hætti og hægt er að hugsa sér?

Ég vona að ég gleymi þessum degi aldrei. Hann var einstakur eins og allt fólkið á myndinni.“

Skjáskot af Facebook

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -