- Auglýsing -
Á sölusíðunni Brask og brall (allt leyfilegt) birtist heldur óvenjuleg en þó hjartahlý auglýsing. Þar er leitað eftir konu. Í færslunni rekur Bryndís Bjarna raunir sínar og hvernig hún fyrr um daginn hafði keyrt utan í bíl í Skeifunni. Hún hafði verið of sein á námskeiðið, Sigrum streituna. Sektarkenndin hafi leitað á Bryndísi yfir daginn og hún viðurkennir að framkoma hennar, gagnvart konunni, hafi verið kaldhranaleg. Einn lesandi færslunar bendir henni á að nafn konunnar ætti að koma fram á skýrslunni. Viðurkennir Bryndís þá í athugasemdum að í stað þess að skiptast á upplýsingum hafi hún sagt konuna að taka mynd af númeraplötum sínum og ekið á brott.
Íslenska sölusíðan, Brask og Brall (allt leyfilegt), er ein sú fjölmennasta og telur um 108 þúsund meðlimi.
Ég er að leita að konu sem ég keyrði utan í (straujaði) þegar við mættumst í beygju í Faxafeni, Skeifunni í dag upp úr kl 13.
Mig langaði að biðja hana innilega afsōkunar á því hversu kaldhranalega ég kom fram. Ég var orðin of sein á námskeið (sigrum streituna) LOL ekki veitir af, með minn athyglisbrest og útá þekju og bara kom illa fram sem er ekki líkt mér enda búin að hugsa um blessaða konuna í allan dag.
Ef þú ert meðlimur þessa hóps þá vill ég skila til þín: Fyrirgefðu
Gera má að því skóna að námskeiðið einhvern árangur borið enda sér Bryndís að sér og biðst forláts. Færsluna má sjá hér