Fimmtudagur 28. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

Sturla er læknirinn sem er borinn þungum sökum: „Ekki sæmandi að ávarpa allar konur sem prinsessur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sturla B. Johnsen heimilislæknir segist aldrei hafa brotið kynferðislega á sjúklingi né öðru fólki. Hann virðurkennir þó að hann hafi verið ónærgætinn í orðavali. DV greindi fyrr í dag frá því að hann sé kominn í leyfi frá störfum vegna slíkra ásakana.

Sturla segir í yfirlýsingu að auðvelt hafi verið fyrir fólk að komast að því um hvern var að ræða í nafnlausum ásökunum. „19. júlí síðastliðinn birtist nafnlaus færsla inni á Facebook hópnum Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu þar sem bornar eru þungar sakir, meðal annars nauðgun, á heimilislækni og honum lýst þannig að þeir sem vilja vita eiga auðvelt með að komast að því um hvern ræðir. Síðar í umræðuþræðinum er ég svo nafngreindur sem sá læknir. Ég vil byrja á því að taka hér fram að ég hef aldrei brotið kynferðislega gegn öðrum einstaklingi. Aldrei. Né hef ég nýtt starf mitt sem læknir til að brjóta á eða misnotaða aðstöðu mína á nokkurn hátt gegn sjúklingum mínum eða öðrum einstaklingum. Aldrei,“ segir Sturla.

Hann viðurkennir þó óvandað orðaval. „Ég get samt ekki skorast undan því, þó ég ætli ekki að fela mig á bakvið þá staðreynd, að ég er mannlegur. Mannlegheitum fylgir breyskleiki og ég get játað mig sekan um það að ég hef mátt vera nærgætnari í orðavali við konur því það er ekki fullorðnum karlmanni sæmandi að ávarpa allar konur til dæmis sem prinsessur eða kalla þær elskulegar. Ég tek það til mín og mun vanda betur orðaval mitt í framtíðinni og vil biðja þær konur sem ég hef sært blygðunarkenndina hjá með orðum mínum innilega afsökunar,“ segir Sturla.

Hann segist ætla taka sér leyfi frá störfum. „Því fylgir mikil ábyrgð að eiga í samskiptum við aðra manneskju og á það við í starfi og í lífinu almennt. Því fylgir einnig mikil ábyrgð að bera aðra manneskju þungum sökum í skjóli nafnleyndar á samfélagsmiðlum. Ég, bæði sem læknir og sem manneskja, hef ekkert að fela. Það breytir því þó ekki að því fylgir einnig mikil ábyrgð að reka heilsugæslu og snýr sú ábyrgð bæði að samstarfsfólki mínu og þeim sjúklingum sem heilsugæsluna sækja. Af virðingu við fyrirtækið sem ég hef ásamt öðrum lagt hart að mér að byggja upp og einnig af virðingu við það góða fólk sem þar vinnur og þangað sækir ákvað ég að taka mér leyfi frá störfum. Það erfiða skref tek ég vitandi að ég hef aldrei gerst sekur um þær þungu sakir sem á mig eru bornar. Aldrei.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -