Þriðjudagur 23. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Þyrluáhafnir Landhelgisgæslunnar á æfingum í Hollandi – Myndband

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í vikunni hafa þyrluáhafnir Landhelgisgæslunnar hlotið svokallaða HUET-þjálfun sem fram fara í Rotterdam í Hollandi.

Á vef Gæslunnar segir að allar þyrluáhafnir Landhelgisgæslunnar verði að gangast undir svokallaða HUET-þjálfun með reglulegu millibili og á það jafnt við um flugmenn, sigmenn, spilmenn og lækna. Markmið þjálfunarinnar er að allir um borð séu undir það búnir að geta komist úr þyrlu sem þarf að lenda í sjó eða á vatni.

Er þjálfunin bæði bókleg og verkleg en í verklega þættinum kemur áhöfnin sér fyrir í þyrlulíkani sem er síðan slakað niður í sundlaug. Fyrst er þetta gert rólega, svo er hraðinn aukinn, því næst er líkaninu velt og í síðustu ferðinni er æfingin gerð í svartamyrkri. Allt er þetta gert til að líkja eftir sem raunverulegustum aðstæðum.

Sjá má brot af æfingum Gæslunnar hér.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -