- Auglýsing -
Töluvert var um útköll í nótt og í gær sökum veðurs. Óskað var eftir aðstoð slökkviliðs og lögreglu vegna foktjóna. Í gær hafði tré gefið sig í veðrinu. Slökkviliðið mætti á vettvang með keðjusagir og var fengið til að aðstoða við að fjarlægja það.
Þá segir jafnframt í færslu slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu að á annan tug verkefna hafi verið á síðastliðnum sólarhring og þar sem óskað hafði verið eftir aðstoð dælubíla og vegna umferðaslys, olíuhreinsunar og vatnstjóns. Sjúfraflutningar voru yfir 120 og af þeim 39 forgangsverkefni.