Mánudagur 6. maí, 2024
2.8 C
Reykjavik

Vettlingar Sjálfstæðisflokksins fóru fyrir brjóstið á leikskólakennurum: „Ekki börnum fyrir bestu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Stjórn Félags leikskólakennara er ósammála yfirlýsingu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkurborgar en sagt var frá vettlingagjörnungi þeirra í ráðhúsinu í fjölmiðlum í gær.

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu 1.600 vettlinga á gólf Tjarnarsals ráðhússins í gær en hver vettlingur átti að tákna hvert það barn sem bíður eftir leikskólaplássi í borginni.

Einar Þorseinsson borgarstjóri kallaði gjörninginn „vitleysu“ og að ekki væru 1.600 börn á biðlista, heldur 1.600 umsóknir. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins gagnrýndi hversu slælega hafi verið tekið undir hugmyndir þeirra á kjörtímabilinu um lausnir á vanda leikskólanna. Til dæmis að greiða foreldrum fyrir að bíða og hefja tilraunaverkefni þar sem börn byrja í grunnskóla fimm ára í stað sex ára.

Stjórn Félags leikskólakennara sendu frá sér yfirlýsingu í dag þar sem félagið hafnar yfirlýsingu Sjálfstæðisflokksins og gagnrýna vettlingagjörnginn. Leggst félagið gegn hugmyndum um að láta fimm ára börn í grunnskóla, sem einhverja lausn á vandanum.

„Í ljósi frétta um vettlingagjörning Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkurborgar vill stjórn Félags leikskólakennara taka fram að það er engin formleg vinna í tengslum við kjarasamninga í gangi varðandi skipulagningu skólastarfs í leikskólum og því síður vinna í gangi að skoða að taka 5 ára börn í grunnskóla. Stjórn Félags leikskólakennara leggst gegn hugmyndum sem einhvers konar lausn á vanda leikskólastigsins að taka börn 5 ára í grunnskóla og er það sýn félagsins að það sé ekki börnum fyrir bestu.“

Þá leggur stjórn Félags leikskólakennara til að í stað „innihaldslausra skyndilausna og gjörninga sem engu skila“, undiriti sveitarfélögin samkomulag um jöfnun launa á milli markaða.

- Auglýsing -

„Stjórn Félags leikskólakennara leggur til að í stað innihaldslausra skyndilausna og gjörninga sem engu skila að sveitarfélögin uppfylli að fullu undirritað samkomulag og loforð um jöfnun launa á milli markaða. Sé það gert verður um að ræða raunhæfa leið til að gera það sem skiptir öllu máli – sem er að fjölga kennurum á leikskólastiginu“

 

 

- Auglýsing -

 

 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -