Klukkan tíu hófst fundur Eflingar og Samtaka atvinnulífsins hjá Ríkissáttasemjara. Væntingar aðila voru hófstilltar en nú í hádeginu munu aðilar Eflingar ganga til atkvæðagreiðslna á enn víðtækari aðgerðum. Ef til frekari verkfalla kemur munu þau verkföll hefjast 28. febrúar næstkomandi.
Samkvæmt Sólveigu Önnu er verið að leggja lokahönd á að finna út hvar neyðaraðilar geti nálgast eldsneyti á meðan verkfalli bensínbílstjóra stendur og segir að einhverjar eldsneytisstöðvar verði ætlaðar neyðaraðilum. Aðspurð um almenningssamgöngur segir Sólveig Anna að yfirlýsing þess efnis verði gefin út þegar endanlegar línur hafa verið lagðar.
Töluvert verður um undanþágur en verið er að forgangsraða í þeim efnum og var Sólveig Anna ekki tilbúin að gefa út hverjar þær væru. En mun Undanþágunefndin funda í dag í Karphúsinu eins og gert var í gær.
Sólveig Anna gengur vongóð inn á fundinn og segir að lokum: „Ég er bara alltaf til í að skoða málin.“