Föstudagur 26. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Yfirlýsing frá stjórn Blaðamannafélags Íslands um uppsögn framkvæmdastjóra

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Yfirlýsing frá stjórn Blaðamannafélagsins barst fjölmiðlum rétt í þessu.

Árétta stjórn Blaðamannafélags Íslands að ákvörðun um uppsögn framkvæmdastjóra félagsins, Hjálmars Jónssonar, hafi verið samþykkt einróma í stjórn félagsins og að ástæðan sé trúnaðarbrestur milli hans og stjórnarinnar.

Hér fyrir neðan má lesa yfirlýsinguna í heild sinni:

Stjórn Blaðamannafélags Íslands áréttar að ákvörðun um starfslok framkvæmdastjóra félagsins, Hjálmars Jónssonar, var einróma samþykkt í stjórn félagsins og kemur til vegna trúnaðarbrests milli hans og stjórnar sem hefur verið viðvarandi um nokkurra mánaða skeið. Yfirlýsingar framkvæmdastjórans fyrrverandi á opinberum vettvangi undanfarna daga opinbera þann trúnaðarbrest – að hann vildi ekki vinna með stjórn félagsins eða í samræmi við ákvarðanir stjórnar. Eins og fram hefur komið var síðasta atvikið sem birti þann trúnaðarbrest í síðustu viku. Stjórn hafði samþykkt að formaður skyldi fá skoðunaraðgang að reikningum félagsins, en framkvæmdastjóri neitaði að framfylgja þeirri ákvörðun. Auk þess hefur framkvæmdastjóri ekki unnið fjölmörg þeirra verkefna sem stjórn hefur falið honum, ásamt því að hann hefur neitað að mæta á fund með formanni og varaformanni. Var stjórnin einróma um það í framhaldinu að óhjákvæmilegt væri að binda enda á ráðningarsamband hans og félagsins. Stjórn áréttar að fullkomlega eðlilegt er að formaður, og eftir atvikum fleiri stjórnarmenn, hafi skoðunaraðgang að reikningum félagsins. Í því felst nauðsynlegt aðhald enda segir í lögum félagsins að stjórn hafi yfirumsjón með starfsemi félagsins og beri á henni fulla ábyrgð. Almennt fer stjórn enda með æðsta vald í málefnum félagsins á milli félagsfunda. Framkvæmdastjóri starfar svo í umboði stjórnar og samkvæmt þeim fyrirmælum og stefnu sem stjórn ákveður. Svo stjórn geti sinnt hlutverki sínu og fylgst með því að rekstur sé í réttu horfi þarf hún að hafa aðgang að bókhaldi og bankayfirlitum. Stjórnarmenn eru að sjálfsögðu bundnir sama trúnaði og framkvæmdastjóri um persónugreinanlegar upplýsingar sem kann að vera að finna í bókhaldi eða bankagögnum félagsins.

Ákvörðunin um að segja Hjálmari upp var engum stjórnarmanni léttvæg, var vel ígrunduð af hálfu stjórnar og hefur átt sér langan aðdraganda. Stuttu eftir að Hjálmar komst á eftirlaunaaldur, í apríl sl., ákvað stjórn að auglýsa starf nýs framkvæmdastjóra sem taka myndi við verkefnum Hjálmars þegar hann léti af störfum sökum aldurs. Í því fólst einnig sú fyrirætlun að starfið myndi breytast og að nýr framkvæmdastjóri myndi sinna nýjum verkefnum sem stjórn hafði ákveðið að ráðast í í samræmi við breyttar áherslur í starfi félagsins. Samhliða því fór fram samtal við Hjálmar um nýtt starf, sem stjórnin vildi bjóða honum, þar sem hann myndi áfram sinna verkefnum í þágu félagsmanna á sömu kjörum og hann hefur notið. Sú vinna, sem var unnin með fullri vitund Hjálmars, var með aðkomu ráðningarskrifstofu. Í tengslum við það ferli afhjúpaðist sá trúnaðarbrestur sem að ofan greinir með fyrrgreindum afleiðingum.

Á sama stjórnarfundi og stjórn tók ákvörðun um starfslok Hjálmars var ákveðið að aðalfundi félagsins yrði flýtt svo sem verða má. Svo fljótt sem endurskoðandi félagsins getur lokið við að ganga frá ársreikningum sem þá þurfa að liggja fyrir verður boðað til fundarins, en samkvæmt lögum félagsins skal það gert með minnst mánaðar fyrirvara. Vonast er til að hægt verði að halda aðalfund í byrjun mars. Þar verður kosið um helming stjórnar til tveggja ára, líkt og lög félagsins gera ráð fyrir. Þá lýkur einnig kjörtímabili formanns og því kosið um formann til næstu tveggja ára.

- Auglýsing -

Stjórn samþykkti á fundi sínum í morgun að setja starfsreglur fyrir skrifstofu félagsins og hefja samhliða vinnu við nánari stefnumótun í samvinnu við félagsmenn. Ákveðið var að halda félagsfund fyrir lok mánaðarins þar sem stefna félagsins til framtíðar verður rædd.

Stjórn Blaðamannafélags Íslands

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -