Miðvikudagur 24. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Karlmanns leitað í Kópavogi í viðamikilli lögregluaðgerð – Réðst á 2 unglinga

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fjöldi lögreglumanna, þar á meðal sérsveit lögreglunnar leita karlmanns í Salahverfi í Kópavogi. Leitað er með aðstoð þyrlu og dróna.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur verið með mikinn viðbúnað í Örvasölum í Kópavogi og næsta nágrenni í kvöld eftir að tilkynning barst um mjög alvarlegt atvik þar sem ráðist var á tvo unglinga um sexleytið. Leit stendur yfir að manni vegna atviksins og er meðal annars notast við bæði sporhund og þyrlu Landhelgisgæslunnar. Maðurinn er talinn vera dökkklæddur, í hettupeysu og með sólgleraugu og grímu. Talið er mögulegt að hann hafi farið að Vífilsstaðavatni. Þeir sem kunna að hafa séð mann, sem lýsingin passar við, eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 112.

Karlmaðurinn mun hafa notað hníf við árásina samkvæmt heimildum Mannlífs og var 14 ára barn flutt á slysadeild, en er ekki í lífshættu.

Þyrlan á flugi yfir Salahverfi

„Þetta er náttúrlega mjög alvarleg árás þannig að við erum búin að vera núna í tvo klukkutíma með marga lögreglumenn, hunda og dróna og þyrlu til að reyna að finna þennan meinta árásarmann,“ segir Ásgeir Ásgeirsson yfirlögregluþjónn í samtali við fréttastofu RÚV. Ásgeir segir lögreglu hafa lýsingu á viðkomandi en ekki miklar upplýsingar til viðbótar.

Í færslu á Facebook biður lögreglan húseigendur að fara yfir myndefni úr öryggismyndavélum á svæðinu og hafa strax samband í 112 ef mynd náðist af einstakling sem lýsingin passar við.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -