Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ætlar að bjóða sig fram í embætti forseta Íslands. Hún upplýsti um ákvörðun sína á Instragram. Þar segist hún hafa verið búin að afskrifa framboð en henni hafi síðan snúst hugur og sé tilbúin í slaginn.
„Ég brenn áfram fyrir því að gera samfélaginu gagn,“ segir Katrín í ávarpi sínu.
Fullkomið uppnám ríkir á stjórnarheimilinu eftir að Katrín til heljarstökkið út úr stjórnmálum. Það kemur í ljós í dag hver verður forsætisráðherra í hennar stað og hvaða þingmaður VG hreppir ráðherrastól. Líklegt er að Framsóknarflokkurinn fá forsætisráðuneytið en VG taki við innviðaráðuneytinu. Þetta mun skýrast þegar líður á daginn.